|
|
67
|
1
|
|
|
|
|
|||
|
Rök með
Skrifaðu rök með
1. Við fiskbúðina hittist fólkið í hverfinuÞegar gengið er upp frá Bergstaðastræti og upp á Freyjugötu er á brattan að sækja. Gamlir og lúnir fætur verða þreyttir. Móðir mín gengur iðulega þessa brekku og þarf að setjast þegar upp er komið. Hún tyllir sér á tröppuna á húsi á Óðinsgötu. Fiskbúðin og Morkinskinna eru samkomustaðir í hverfinu, þar væri upplagt að setja einn af fjölmörgum bekkjum sem nú prýða Baldursgötutorgið. Þá geta þreyttir fætur hvílt sig og gestir á samkomustað tyllt sér.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
2. Einfalt og gott málÞað ætti að vera lítið mál að græja þetta. Hjónin í fiskbúðinni hafa komið fyrir stól inni í búðinni til að heldri viðskiptavinir geti kastað mæðinni. Skemmtilegra væri að hafa bekk fyrir utan þar sem fólk gæti notið sólarinnar auk þess sem enn meira líf væri sjáanlegt á þessu yndislega horni hjá þessari yndislegu búð.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
3. Mikilvægt að geta sest á gangi!Það er á brattan brattann að sækja í Þingholtunum og nauðsynlegt fyrir marga að geta sest og kastað mæðinni. Fiskbúðin á Freyjugötu er staður þar sem margir úr hverfinu hittast og spjalla og bekkur þar fyrir utan verður bæði hvíldarstaður fyrir lúna og staður fyrir spjall sem styrkir samkennd.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
4. Topp staðsetning, færum bekk af Baldurstorgi að FiskbúðinniBekkur við skjólgóðan vegg á sólríkum stað við fiskbúðina á Freyjugötu. Hér eiga íbúar leið um, taka spjall saman og versla. Bekkurinn nýtist vel hér. Torgið við Baldursgötu ber ekki skaða, þótt það verði einum bekk færri.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||