|
|
17
|
|
||
|
|
|||
|
Rök með
Skrifaðu rök með
1. Tími til kominn á bætta þjónustuHundar hverfa ekki úr borginni þó þjónustan sé lítil sem engin. Það hefur reynslan sýnt, en undanfarin 10 ár hefur hundaeign í borginni meira en tvöfaldast. Íbúar í Reykjavík greiða meira en 30 milljónir í hundaleyfisgjöld á ári og íbúar í öðrum sveitarfélögum borgarinnar meira en 20 milljónir. Samt eru einungis 1-2 hundasvæði í allri borginni. Hundar þurfa hreyfingu og efla félagsþroskann með því að leika lausir við aðra hunda daglega. Því ættu hundagerði að vera í öllum hverfum borgarinnar.
Vefslóð sem fylgir hugmynd:
http://www.wien.gv.at/umwelt/parks/hundezonen.html
24 aðilum fannst þetta gagnlegt.
2. Dýravelferð er öllum til gagns og ánægju.Hundahald er alltaf að verða útbreiddara og hundaeigendur eiga misauðvelt með að hleypa þeim út að viðra sig, eins hafa eigendur og hundar auðveldara með samskipti við aðra eigendur ef hægt er að hitta aðra í sama tilgangi. Eins þurfa hundar að læra að umgangast aðra hunda og fólk og geta það á svona stöðum.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt.
3. Börn sem hræðast hunda þora ekki að leika sér á Klambratúni.Klambratún er stórt, þar hafa hundafólk verið með hundana sína lausa þrátt fyrir að lög banni slíkt. Það er alveg sama við hvaða embættismenn er talað, ekkkert er hægt að gera við tilllitslausa hundaeigendur, sennilega ættu þeir að vera í bandi. Ég vil hundagirðingu á Klambratún svo börn geti verið þar frjáls að leik. Ef ekki hundagirðingu, þá hundaeigendagirðingu!
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 4 fannst það ekki.
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ég sá svona útigerði víða í Kaupmannahöfn í haust. Skemmtilegt að sjá borgaryfirvöld þar vinna með hundaeigendum og koma með lausnir í stað boða og banna. Þessi gerði þurfa alls ekki að vera stór og nóg er af ónýttu svæði sem gæti hentað vel fyrir svona gerði.
Geirsnef - Laugardalur og Klambratún. En hvað með hin hverfin ? Hvernig væri að þeir sem þekkja sitt hverfi, settu inn hugmynd að staðsetningu.
Nægilega nálægt til að skreppa út - samt nægilega langt frá byggð til að smábörn geti sofnað.
Það er ekki nóg að segja að þetta þrufi að gerast, það þarf líka að koma með hugmyndir.
Grafarvogur - hvað með styttugarðinn neðan við Strandveg ?
Í hlíðinni neðan við Húsahvefið, gegnt Vesturlandsvegi ?
Túnið milli Hallsvegar og Gylfaflatar ?