|
|
43
|
4
|
|
|
|
|
|||
|
Rök með
Skrifaðu rök með
1. Aðstöðuleysi gífulegt og húsnæðið stendur þarna ónotað.Spennistöð OR stendur ónotuð á lóð Austurbæjarskóla. Hún er 385 fm og lofthæð er 6-7m með millilofti yfir hluta húsnæðisins yrði það um 600 fm. Tilvalið er að henni verði breytt í félags- og menningarmiðstöð auk þess sem skólinn fái afnot að húsnæðinu fyrir ýmsa starfsemi sem nú er á hrakhólum. Aðstaðan gæti einnig nýst fyrir tónleika, leiksýningar,dansleiki, listasmiðjur, íbúasamtök, frjáls félagasamtök og átthagafélögum útlendinga til fundarhalda og annarar starfsemi.
Vefslóð sem fylgir hugmynd:
http://www.or.is/Media/w220/2d1d89793dfcc7b1.jpg
18 aðilum fannst þetta gagnlegt.
2. Brýnt að huga sérstaklega að ungu fólki sem býr miðbænum.Gefum spennistöðinni nýtt líf sem félagsmiðstöð, tómstunda og tilraunamiðstöð ungs fólks í miðborg, þar sem áhersla er lögð á að börn og ungt fólk geti þroskað hæfileika sína í öruggu umhverfi og gert tilraunir með það sem hugur þeirra stendur til. Spennistöðin yrði tilrauna- og átaksverkefni, bæði hvað varðar uppbyggingu, starfsemi og samnýtingu. Forgangsröðum framkvæmdum í þágu barna og ungs fólks.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
3. Dýrmætt húsnæði er að fara til spillis í aðþrengdu hverfiÞarna standa ónotuð mikil dýrmæti. Dýrmæti í merkingunni HÚSNÆÐI sem er virkilega þörf fyrir bæði fyrir Austurbæjarskóla og einnig hans félagsverur. Hætta skapast gagnvart þeim sem lifa og starfa innan lóðar skólans þegar verið er að flytja hluti inn og út úr húsinu. Afnot orkufyrirtækisins okkar af þessu húsnæði á þessum stað eru stórfurðuleg að mínu mati og hljóta að standa á einhverjum gömlum merg! Merg sem er kannski ekki nauðsyn fyrir lengur!
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Maður hélt alltaf að það væri eitthvað voða mikilvægt þarna inni - en standi þetta autt og ónotað er þetta náttúrulega ideal rými! Glæsileg hugmynd! Svo á auðvitað að virkja svæðið fyrir framan aftur sem verkefni ungra listamanna - með hámenningar-götulist... Allt myni þetta samtengjast!... Að endingu ætti auðvitað Þjónustumiðstöð *Miðborgar og Hlíða að flytja í Vörðuskóla og þá yrði þetta æðislegt svæði!