|
|
Í vinnslu
|
|
|||
|
|
||||
|
Rök með
Skrifaðu rök með
1. Hundagerði á KlambratúniHundaeign er orðin mikil í Reykjavík, ekki er hægt að horfa fram hjá því að hundar eru orðnir partur af borgarlífinu. Það er öllum til hagsbóta, bæði hundaeigendum og ekki síður þeim sem ekki eiga hunda að horfast í augu við þá staðreynd. Sérstök hundagerði auka öryggi allra og uppsetning þeirra þarf ekki að vara dýr í framkvæmd.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
2. Aðstaða fyrir hunda víða til fyrirmyndar erlendisKlambratún er útivistarperla sem er allt of lítið notuð. Eins og er virðast hundaeigendur vera þeir sem nota túnið hvað mest. Víða erlendis eru hundagerði í almenningsgörðum, allt í sátt og samlyndi við aðra starfsemi í görðunum, því ekki eins í Reykjavík? Í Vínarborg eru 163 hundasvæði, samtals 1000km2 svæði (sjá tengil). Þar búa um 2.000.000 manna. Það væri svipað og að við hefðum 16 hundasvæði, samtals 100km2 svæði, á höfuðborgarsvæðinu. 1-2 hundasvæði er einfaldlega ekki ásættanlegt.
Vefslóð sem fylgir hugmynd:
http://www.wien.gv.at/umwelt/parks/hundezonen.html
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
margir eru hræddir við hunda og útivistarsvæði eru ekki mörg í reykjavík. ég segi borgin fyrir fólkið og dýrin eiga ekki heima í borg.
Kæra Sunna,
Það eru fleirri hundar sem bíta ekki lítil börn, en sem bíta. Það er greinilegt að þín skoðun á hundahaldi sé algeng í Reykjavík. Mér finnst rökræða þín líkt og 'sumt fólk drekkur og keyrir -bönnum ÖLLUM að aka. Maður fer heldur ekki út úr húsi án þess að finna fyrir mengun frá þeim, og svo fylgir þeim líka mikil læti'. ?