Veit ekki alveg hvernig á að framkvæma þetta, en hugmyndin er að fá meira fjármagn inn í skólann. Tiltekinn árgangur (þekki því miður ekki hina) er stór og þætti eðlilegast að skipta tveimur bekkjum í þrjá svo hægt sé að fá vinnufrið í tímum. En því miður er ekki aðstaða í skólanum til að skipta árgangnum í þrennt þar sem það er ekki til rými (hægt er að fá aukakennara en ekki til aðstaða). Stofurnar eru litlar og því þarf lítið til að trufla vinnufriðinn. Ég vil betri aðstöðu fyrir börnin.
Ég er ekki mjög hávaxin manneskja, aðeins 164 cm á hæð sem er einhverjum 6 cm undir meðalhæð kvennmanns. Ég get sjaldnast setið í heitum pottum í sundlaugum því þá nær vatnið mér upp fyrir munn og ekki er þægilegt að sitja þannig. Í einstökum sundlaugum er halli á sætunum þannig að lágvaxnir geti fundið sæti við sitt hæfi en þurfi ekki að sitja á hækjum sér, en á morgum stöðum er ekkert slíkt. Er ekki hægt að fá sessur (svipað og er fyrir börn í bíó) svo allir geti setið í heitu pottunum?
Það er að bera í bakkafullan lækinn að setja ljós þarna. Það eru önnur ljós 100 metrum neðar og enn önnur innan við kílómeter síðar hvort sem farið er beint áfram eða beygt á næstu ljósum. Yrði ekki til bóta fyrir þá sem eru á leið upp í Hóla eða Berg.
Það er bara fínt að hafa þetta lokað. Mann munar ekkert um að keyra þessa smá lykkju.
Fyrir mörgum árum síðan var vinstri beygju um Fálkabakka-Höfðabakka lokað. Hvers vegna veit ég ekki. Mín tillaga er að opna aftur þessa beygju og setja á snertiljós. Það er fullt af fólki sem tekur þessa beygju ólöglega og hún er stórhættuleg. Ég fer þarna mjög oft um. Það er oft rosalegur flöskuháls að keyra niður í Stekkjarbakka til þess að fara í Árbæ og því fer fólk frekar Fálkabakkann og tekur U-beygju á gatnamótum Fálkabakka-Vesturhóla-Suðurhóla. Þessi U-beygja er lögleg en stórhættuleg.
Það getur hljómað vel að vera "sveigjanleg", en til þess að gæta jafnræðis í þessum málum þarf að hafa reglur sem ganga yfir alla jafnt. Það er ákveðinn sveigjanleiki innifalinn í reglunum og því þarf ekki að setja sig upp á móti þeim. Lögð er áhersla á að fræða um lífsskoðanir og reglurnar skerpa á því að skólinn er menntastofnun, en ekki vettvangur trúariðkunar eða trúboðs. Ég setti inn reglurnar sem um ræðir á bloggið mitt (sjá vefslóðina hér).
Uppruni:
http://blog.eyjan.is/svanurmd/
Það er búið að þvæla þetta mál út og suður með útúrsnúningum og lygum. Það ætlar enginn að banna börnum að fara með faðirvorið. Þau verða hinsvegar ekki skylduð til að fara með það eða leidd í bæn eða trúarjátningu.
Aðalnámskrá grunnskóla stendur óbreytt og reglurnar hafa alls engin áhrif á trúarbragðafræðslu í skólanum, nema ef vera skyldi til þess að gera hana faglegri í þeim tilvikum þar sem trúboði hefur verið þvælt saman við hana hingað til.
Það er rangtúlkun viðkomandi reglna að börnum sé bannað nokkuð. Þau mega enn biðja í skóla og kirkju en ekki má þrýsta þeim útí það eða krefjast þess af þeim.
Trúarbrögð eru ekki bönnuð í Rvík. Auðvitað eiga börn að læra trúabragðafræði um það er ekki deilt. Engin breyting verður á kennslu heldur er verið að koma í veg fyrir trúboð. Í veraldlegu samfélagi eru opinberir skólar fyrir öll börn jafn þeirra sem koma frá trúuðm foreldurm eða ekki. Foreldrar bera ábyrgð á uppeldi barna sinna og gildir það einnig um trúaruppeldi. Tillagan stríðir gegn mannréttindum.
Í raun er ég ekki á móti Andreu en vil meina að það sé talsverð kennsla um önnur trúarbrögð í skólum. Nemendur fara a.m.k. tvisvar í grunnskóla í gegnum stóru heimstrúarbrögðin og einu sinni í gegnum grunnhugmyndir trúarbragða og sögu.
Ég er á móti því að hafa tvöfalt prógram, kristnir og aðrir.
Nú er mikil umræða um að banna trúarbrögð í skólum. Börn sem fara með grunnskólanum og leikskólanum í kirkju á aðventunni er bannað að fara með Faðir vorið. Það á ekki að banna börnum að fara með bænir en ekki heldur neyða börn til að fara með bænir. Hafa tvíþætta dagskrá (trúaðir fá bænir, hinir fá létta kynningu). Ég vil auka trúarbragðakennslu og að börnin mín læri um önnur trúarbrögð, íslam, ásatrú, búdda, hindu. Skapa umræður ef börn eru mismunandi trúar innan bekkjarins, auka víðsýni.
Íslenska