|
|
|
Nálægð Landspítalans við Háskóla Íslands gerir nemum HÍ kleift að stunda sitt nám og rannsóknir í grennd við spítalann. Sömuleiðis er hún gagnleg starfsfólki landspítalans til rannsókna, kennslu og jafnvel aukins náms samhliða störfum sínum á spítalanum. Miklar samgöngur eru t.d. á milli Læknagarðs og Landspítalans við Hingbraut varðandi verklega- og bóklega kennslu, sýnaflutninga og samnýtingu á ýmsum tækjum. Að hafa þessi nátengdu samfélög hlið við hlið er ekkert nema kostur -á báða bóga.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Þessar hugmyndir eiga að vera saman en 500 stafa takmarkið leyfði það ekki. Landspítalinn til Keflavíkur,Háskólasamfélag í Vatnsmýrinni og Samgöngur milli Reykjavíkur og Keflavíkur.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Þessar hugmyndir eiga að vera saman en 500 stafa takmarkið leyfði það ekki.
Landspítalinn til Keflavíkur,Háskólasamfélag í Vatnsmýrinni.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Fornaldarbær Ingólfs Arnarsonar
Ferðamenn sem koma til Íslands vilja kynnast sögu okkar, menningu og jafnvel bragða mat þann sem var á borðum fyrir 1000 árum.
Mig langar að byggja fornaldarbæ í Hljómskálagarðinum eða miðbænum sem býður ferðamönnum að kynnast sögu okkar mat og menningu. Staðurinn yrði úr torf og grjóti og með gömlum húsgögnum. Kokkar og þjónustufólk verði í fötum þess tíma. Maturinn væri reyktur, lagður í súr, þurrkaður os.frv.
Gestir fengju kyrtil og sauðskinsskó við komuna í skálann.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Flugvöllur Reykjavíkur verði fluttur til Keflavíkur og Vatnsmýrin verði byggð upp af lágreystri byggð tengdri háskólunum. Margir sem fljúga til Reykjavíkur eru á leið til útlanda og aðrir í fjölmennustu byggðirnar í austurhluta borgarinnar.
Samgöngur milli Keflavíkur og Reykjavíkur verði stórefldar með járnbraut og tvær járnbrautastöðvar verði í Reykjavík, í Vatnsmýrinni og Ártúnsbrekku. Járnbrautastöð verður í Leifstöð og við spítalann á gamla varnarsvæðinu. ( sjá nánar aðra hugmynd )
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Landspítalinn verði byggður upp á gamla varnarsvæðinu í Keflavík. Borgarspítalinn verði aðalspítali Reykjavíkur enda er hann mun meira miðsvæðis en við Hringbraut. Allar byggingar Landspítalans verði notaðar fyrir háskólana í nágrenninu. T.d. sem stúdentagarðar, rannsóknastofur og kennslustofur. Þetta mun leiða til þess að flestir háskólanemar geta labbað í skólann og umferð því stórminnka.
Flugvöllur Reykjavíkur verði í Keflavík og lögð verði járnbraut og hraðbraut. ( sjá nánar aðra hugmynd )
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|